Bloggfærslur mánaðarins, september 2007

Fordómar undir yfirskyni aulafyndni

Af gefnu tilefni rifjaði ég upp nokkur atriði varðandi fordóma. Fæstum
er gefið að tala niðrandi til náunga síns og hæðast að honum, enda á
það varla við nema í þröngum vinahópi.  Hann er vandmeðfarinn hinn
þröngsýni gálgahúmor því oft kemur hann upp um þekkingarleysi og
fordóma í garð þess sem háðinu er beint að. Fordómar eru bæði
hættulegir og særandi. Hættan felst í því að þeir geta farið að hafa
áhrif á hegðun þess sem fyrir verður og leitt til mismununar.
Einstaklingur sem dæmdur er út frá fyrirfram gefnum alhæfingum um
tiltekin hóp, er um leið sviptur möguleikanum á að sýna hver hann er í
raun og veru.  Sjálfsmyndin brotnar og líðan viðkomandi getur
versnað bæði á líkama og sál.  Fordómar eru því ekkert annað en
skaðleg vopn sem beitt er gegn heilsu fólks og veldur það vopn síst
minni skaða þó það sé notað með þröngsýna gálgahúmorinn að
yfirskyni.  Sá sem fyrir slíkri aulafyndni verður ætti að upplýsa
hinn ófyndna aula um skaðsemi háðsins og það sem að framan er ritað.

Áfram ÍA

Enn einu sinni sýna Skagamenn hvernig á að ná árangri í fótbolta.  Minnstu munaði að þeir ynnu leikinn á móti Val.  Það má sjá áhrif hins magnaða þjálfara Guðjóns Þórðarsonar skína í gegn.  Þetta hlýtur að vera góð leiktíð hjá honum og Skagaliðinu öllu.  Sérstaklega er gaman að sjá ungu strákana axla ábyrgð og standa undir henni.  Áfram ÍA.


17 íbúðir í byggingu á Húsavík en fækkar um 40 börn í grunnskólanum?

Í Skarpi, fréttablaði sem gefið er út á Húsavík, segir að 17 íbúðir séu nú í byggingu á Húsavík.  Miklar væntingar vegna fyrirhugaðs álvers á svæðinu virðast skýra það að verktakar eru að framleiða íbúðarhúsnæði til sölu.  Í haust fækkaði nemendum í grunnskólanum hins vegar um 40, að sögn kennara við skólann.  Sami kennari segir mér að fækkað hafi um 90 börn síðustu 2-3 árin.  Þessi fækkun grunnskólabarna hlýtur að þýða umtalsverða fækkun íbúa á Húsavík. 

Ísland -Spánn, góð skemmtun

Leikur okkar manna gegn spánverjum í gærkvöldi hélt mér hugföngnum frá fyrstu mínútu.  Ekki svo að skilja að um hágæðaknattspyrnu hafi verið að ræða, langt í frá.  En viljinn var til staðar hjá okkar mönnum sem lögðu sig alla í þennan leik.  Mark Emils var stórglæsilegt enda sendingin frá Jóhannesi Karli meistaraverk.  Verra var að svo góður spyrnumaður og baráttujaxl sem Jóhannes er hafi ekki spilað allan leikinn. Það var liðsheildin sem var besti maður íslendinga í gærkvöldi og spennandi að sjá hvort takist að halda rétta andanum á miðvikudaginn.  Ég bíð spenntur eftir leiknum á móti Norður Írum og hætti hugsanlega á að heimsækja góðkunningja minn, írann Iian Peter, til að horfa á leikinn með honum.


Gott hjá Fjölni

Undanúrslitaleikurinn í VISA keppni karla var vel spilaður og góð skemmtun. Vonandi fá lánsmenn úr FH að spila úrslitaleikinn sjálfan.


Höfundur

Þórir Aðalsteinsson
Þórir Aðalsteinsson

Bý á Laugum í Reykjadal og kenni við Framhaldsskólann á Laugum. Ég kýs heilbrigðan lífstíl og vil fordómalausa, en skelegga umræðu. 

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband