Þingeysk þríþraut verður haldinn í 7. sinn þann 9. ágúst 2008. Synt verður í hinni nýju 25 metra sundlaug á Laugum og hjólaðir 40 kílómetrar til Húsavíkur, þar sem hlaupnir verða 10 kílómetrar. Ef vindstyrkur verður of mikill úr norðri verður hjólað frá Laugum að Tjörn og til baka og svo hlaupinn "Sveitahringurinn" líka kallaður "Austurhlíðarhringurinn", sem er 10 kílómetrar.
Ánægjulegt var að sjá á hlaupasíðunni www.hlaup.is er nú þegar búið að bóka Þingeysku þríþrautina. Það sýnir að Þingeyingar eru komnir á blað með uppákomuna. Vonandi tekst okkur forsvarsmönnum þessa ágæta íþróttaviðburðar vel upp í ár. Í fyrra tóku afreksmenn þátt, en bæta mátti þáttöku almennings, sem var aðaltilgangurinn með þessum viðburði í upphafi.
Íþróttagreinarnar þrjár eru almenningsíþróttir og hægt er að taka þátt í styttri vegalengdum eða keppa í liði, þar sem einn syndir, annar hjólar og sá þriðji hleypur. Koma svo - Þingeyingar og aðrir landsmenn! Byrjið að æfa og breytið lífstílnum heilsunni í hag. Skráið ykkur svo í þrautina á ykkar eigin forsendum...
Flokkur: Lífstíll | 6.2.2008 | 13:39 (breytt kl. 13:49) | Facebook
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2014
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Maí 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Tenglar
Mínir tenglar
- Framhaldsskólinn á Laugum Framhaldsskólinn á Laugum
- Æfingadagbækur Æfingadagbækur
- Hlaupadagskrá Hlaupadagskrá
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.