Skjótt skipast veður í lofti. Pólverjar eru farnir að lána Íslendingum fé, sem næstum fór fram hjá ráðamönnum þjóðarinnar, og Færeyingar létu ekki sitt eftir liggja. Það kemur ekki á óvart að áhugi Rússa hafi minnkað, sjá blogg mitt í síðasta mánuði. Norðurlandaþjóðirnar munu víst skrapa saman og Norðmenn sýndu hug sinn í verki. Merkilegt er líka að Íslendingar hafi leitað formlega til Kínverja. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn verður svo væntanlega fyrir þrýstingi fra Bretum og Hollendingum en Landsbankinn rak þar innlánastarfsemi, sem skellt var í lás án formála. Kæmi mér ekki á óvart þótt í kjölfarið fylgdu langvinn málaferli en það er víst þannig að vegna aðildar að Evrópska Efnahagssvæðinu ber Íslendingum að gera öllum þjóðernum jafn hátt undir höfði, þar með talið i setningu laga. Það er auðvitað mikið til í því sem stjórnarvaraþingmaðurinn Mörður Árnason sagði í Silfrinu í dag að þetta er dálítið eins og landslið Íslands hafi tapað 2-14 í mikilvægum leik. Nema hvað að nú þegar kemur að næsta mikilvæga leik við að byggja upp að nýju að þá eru sömu leikmennirnir hafðir inná og ekki búið að skipta um stjórn K.S.Í. Þjálfarar hafa nú verið látnir taka pokann sinn og gerðar breytingar á leikmannahópnum af minna tilefni.
Flokkur: Bloggar | 9.11.2008 | 14:54 (breytt kl. 16:55) | Facebook
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2014
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Maí 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Tenglar
Mínir tenglar
- Framhaldsskólinn á Laugum Framhaldsskólinn á Laugum
- Æfingadagbækur Æfingadagbækur
- Hlaupadagskrá Hlaupadagskrá
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.