Fyrir löngu var komin tími á vinstri beygju Framsóknar

Þingmenninir 7 af lista Framsóknarflokksins hafa verið að týna tölunni síðustu vikur.  Tveir hafa sagt af sér og a.m.k. tveir gefa ekki kost á sér til endurkjörs. Það telst umtalsverð endurnýjun í gamalgrónum flokki.  Ýmsar ástæður eru gefnar upp.  Allt frá því að hafa óvart ýtt á Enter í tölvupósti til þess að segjast vilja víkja fyrir yngra fólki.  Mig grunar að til að leysa úr vanda flokksins þurfi nú naflaskoðun til að skilgreina hlutverk flokksins.  Ráðlegt er að beygja umtalsvert til vinstri. Kannski liggur beinast við að hverfa aftur til fortíðar og skipta þessum þó litla flokki í tvennt.  Landsbyggðarflokk, eins og hann var þegar hann var stærstur, og höfuðborgararm sem gæti umsvifaust liðsinnt Samfylkingunni t.d. í því að ganga í Evrópusambandið.  Tilburðir framsóknarmanna við að ná fylgi í borginni hafa gengið fremur illa og ég spyr mig hvort á þeim vígstöðvum hafi verið fórnað því sem flokkurinn ætti að standa fyrir.  Ekki síst nú á krepputímum.  Það er að vera málsvari landsbyggðarinnar og grunnatvinnuvega þjóðarinnar. Það er þörf fyrir félagslega samstöðu og samvinnu fólksins í landinu. Burt með græðgina og spillingarliðið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Mikið rétt það er þörf fyrir samstöðu og samvinnu fólks, en þá þarf endilega að kenna því til að byrja með hvað samvinna er.
Flest fólk er svo egóist að það fattar ekki um hvað málið snýst.
Burtu með allt þetta gamla gróna spillingalið.
Kveðja
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 2.2.2009 kl. 20:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórir Aðalsteinsson
Þórir Aðalsteinsson

Bý á Laugum í Reykjadal og kenni við Framhaldsskólann á Laugum. Ég kýs heilbrigðan lífstíl og vil fordómalausa, en skelegga umræðu. 

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband