Pólitísk fagmennska í embættisveitingum

Umræða um stöðuveitingu setts dómsmálaráðherra rétt fyrir jólin 2007 er áfram til umræðu.  Þegar Árni Matthiesen (D) skipaði Þorstein Davíðsson dómara við héraðsdóm Norðurlands og héraðsdóm Austurlands. Kastljósið ætlar ekki að láta þetta gleymast því þrisvar var málið til umfjöllunar í síðustu viku. En það er einmitt málið.  Ráðamenn humma svona mál fram af sér og þjóðin gleymir þeim.  En kastljósið mætti skoða embættisveitingar sem þessa frá annari hlið. Hin faglega vinna sem fara á fram í hæfnisnefnd um opinberar stöðuveitingar líður oft fyrir pólitíska skipan í nefndirnar sjálfar. Pólitíska einsleitni í nefndunum, sem varla er tilviljun. Dæmi eru um að í þriggja manna hæfnisnefnd hafi setið eingöngu flokksbundið fólk í sama flokki. Þeirra á meðal einstaklingur sem á sama tíma var í prófkjöri fyrir flokkinn. Og annar sem gegndi pólitískum trúnaðarstörfum á vegum flokksins. Þetta fólk valdi auðvitað flokksbróðir sinn hæfastan umsækjanda.  Þetta er gamla Íslands og það sem veldur samfélaginu hvað mestu tjóni nú um stundir. Þetta er "Helvítis fokking fokk". Ég segi: "Burt með spillingarliðið".

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ja hérna Þórir minn það er bara tekið stórt upp í sig hér enda ekki vanþörf á.
Til fjandans með spillingarliðið.
Annars gleðilegt ár til ykkar og takk fyrir svipmót á því liðna.
Kveðja
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 12.1.2009 kl. 18:04

2 Smámynd: Þórir Aðalsteinsson

Nú, jæja afsakaðu. Ef þú átt við blótsyrðin þá eru þau úr áramótaskaupinu.  Þau eru því  ekki eins klúr og þau birtast fólki á prenti? Hvað samtryggingu og flokksræði á Íslandi varðar stend ég við hvert orð.  Nú þurfum alvöru lýðveldi og lýðræði. Burt með  klíkuskap og samtryggingu. Mér fannst ég reyndar frekar orðvar miðað við tilefnið.

Takk fyrir ábendinguna Milla.

Kveðja, Þórir.

Þórir Aðalsteinsson, 12.1.2009 kl. 20:38

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ekkert að þakka Þórir, nota svona orðbragð er þurfa þykir og þú varst orðvar.
Ég er svo sammála þér og öðrum í þeim efnum sem um ræðir er samt afar hrædd um að við náum eigi okkar fram.
Fólk lætur alltaf undan og gleymir.
Horfði reyndar á skaupið en er þegar búin að gleyma öllu sem þar gerðist, en
ég er nú víst talin skrýtin manneskja í húmor.
Kveðja
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 13.1.2009 kl. 18:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórir Aðalsteinsson
Þórir Aðalsteinsson

Bý á Laugum í Reykjadal og kenni við Framhaldsskólann á Laugum. Ég kýs heilbrigðan lífstíl og vil fordómalausa, en skelegga umræðu. 

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • husavik
  • beint a hjolid
  • skogur
  • husavik
  • jlo2 jpg 475x600 sharpen q95[1]

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband